Spennan færist í aukana á Kóreuskaga 27. maí 2010 01:15 Hermenn Suður-Kóreu í varðstöð við Gangneung, austur af Seoul, höfuðborg landsins. Í gær hótaði Norður-Kórea að stöðva alla umferð um landamæri ríkjanna og skjóta á hátalara sem Suður-Kórea notar til að útvarpa áróðri yfir í norðrið. Fréttablaðið/AP „
Þetta var óviðunandi ögrun af hálfu Norður-Kóreu og alþjóðasamfélagið verður að sýna ábyrgð og bregðast við,“ sagði Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Seúl, höfuð-borg Suður-Kóreu, í gær. Norður-Kórea hótaði því að stöðva alla umferð um landamæri ríkjanna inn á iðnaðarsvæði á landamærum þeirra. Að sögn yfirvalda í Suður-Kóreu var átta embættismönnum á verksmiðjusvæði í landamæraborginni Kaesong í Norður-Kóreu vikið úr landi. Spennan í samskiptum ríkjanna á rætur að rekja til þess að suður-kóresku herskipi var sökkt í lok mars. Í síðustu viku komst rannsóknarteymi að þeirri niðurstöðu að norður-kóreskur kafbátur hefði sökkt því en 46 skipverjar létu allir lífið í árásinni. Suður-Kórea hefur brugðist við tíðindunum með því að hætta viðskiptum við nágrannann í norðri, hefja áróðursstríð á landamærunum og hindra umferð norður-kóreskra flutningaskipa. Bandaríkjamenn hafa sagt að sannanir fyrir því að Norður-Kóreumenn séu sekir um að hafa sökkt herskipinu Cheonan séu nægilega sterkar og hafa stutt við bakið á Suður-Kóreumönnum. Ráðamenn Kína, aðalbandamanns Suður-Kóreu, hafa hins vegar sagt að þeir séu enn að skoða gögnin og hafa lítið gert nema hvetja ríkin til þess að grípa ekki til neinna aðgerða. „Ég tel að Kínverjar skilji alvarleika málsins og séu tilbúnir til þess að hlusta á áhyggjuraddir Suður-Kóreumanna og Bandaríkjanna,“ sagði Hillary sem sótti Kína heim áður en hún hélt til Seúl. Suður-Kóreumenn vilja að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fjalli um árásina á herskipið og hafa stuðning Bandaríkjamanna í því. Norður-Kórea hefur vísað því alfarið á bug að hafa sökkt herskipinu og látið í veðri vaka að refsiaðgerðir gætu endað með stríði. Brugðist yrði til varnar gegn sálfræðihernaði Suður-Kóreu og skipum og flugvélum ríkisins meinað að fara um yfirráðasvæði Norður-Kóreu. Tæknilega hafa Suður- og Norður-Kórea verið í stríði síðan Kóreustríðinu 1950 til 1953 lauk vegna þess að því lauk ekki með friðarsamningi heldur vopnahléi. Samskipti ríkjanna bötnuðu mjög fyrir um tíu árum en hafa versnað síðan Lee Myung-bak varð forsætisráðherra Suður-Kóreu árið 2008. sigridur@frettabladid.is
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Fleiri fréttir Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Sjá meira