Íslenski boltinn

Íslenskur bumbubolti í útrás

Elvar Geir Magnússon skrifar
Aðeins einu sinni áður hefur íslenskt lið tekið þátt í úrslitakeppni Vodafone Cup, en það var í Moskvu árið 2008. Þá gerðu Íslendingar sér lítið fyrir og unnu mótið eftir að hafa lagt lið Spánar í úrslitaleik.

Í byrjun janúar verður haldið áhugavert fótboltamót í Fífunni í Kópavogi, Vodafone Cup, en mótið er ætlað áhugamönnum. Sigurliðið mun svo keppa fyrir hönd Íslands í alþjóðlegu móti sem fram fer í Abu Dhabi í Sameinuðu Arabísku furstadæmunum í febrúar.

Auk þess að taka þátt í mótinu Í Abu Dhabi fá leikmenn liðsins VIP-aðgang að árlegri verðlaunahátíð góðgerðasamtakanna Laureus þar sem fram fer val á bestu íþróttamönnum heims.

Meðal þeirra sem verðlaunaðir voru á síðustu hátíð voru spretthlauparinn Usain Bolt, tenniskonurnar Serena Williams og Kim Clijsters auk kappaskturshetjunnar Jenson Button. Kynnir hátíðarinnar var leikarinn Kevin Spacey.

Nánari upplýsingar um Vodafone Cup má finna á heimasíðunni vodafone.is.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×