Erlent

Obama taki ábyrgð

Mynd/AP
Vinsældir Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, hafa aukist um 3% og segjast nú 46% Bandaríkjamanna vera ánægðir með störf hans. Jafnmargir segjast vera ósáttir við störf hans sem forseta. Þetta kemur fram í skoðanakönnun bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar Fox News.

Fyrir ári sögðust 62% Bandaríkjamanna vera ánægðir með Obama. Ástæðan fyrir þessum minnkandi vinsældum Obama er helst rakin til mikils atvinnuleysis í Bandaríkjunum.

Þá telja tveir af hverjum þremur að kominn sé tími á að Obama hætti að kenna George Bush og ríkisstjórn hans um stöðu mála vestanhafs og taki þess í stað ábyrgð sem forseti landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×