Bolton skoraði tvö mörk manni færri og vann Blackburn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. desember 2010 15:24
Bolton vann 2-1 sigur á Blackburn í ensku úrvalsdeildini þrátt fyrir að lenda manni undir í stöðunni 0-0 þegar 34 mínútur voru eftir af leiknum. Wolves bætti á sama tíma stöðu sína á botninum með því að vinna 1-0 sigur á Birmingham. Stuart Holden tryggði Bolton 2-1 sigur á Blakcburn með því að skora sigurmarkið á 88. mínútu. Boltin komst upp í 5. sæti deildarinnar með sigrinum en Tottenham getur endurheimt fimmta sætið þegar liðið mætir Chelsea klukkan 16.00. Bolton var miklu sterkara liðið framan af leik en Blackburn endaði fyrri hálfleikinn betur. Staðan var markalaus í hálfleik en í seinni hálfleiknum fóru hlutirnir að gerast. Bolton-maðurinn Mark Davies fékk sitt annað gula spjald á 56. mínútu fyrir að fara með olbogann hátt á lofti inn í skallaeinvígi við Phil Jones. Bolton lagði þó ekki árar í bát og varamaðurinn Fabrice Muamba kom Bolton í 1-0 á 65. mínútu með laglegu skoti úr teignum eftir að mikið hafði gengið á í kjölfarið af aukaspyrnu Sam Rickett. Mame Biram Diouf jafnaði leikinn á 87. mínútu eftir stungusendingu frá Jason Roberts en Stuart Holden kom Bolton yfir aftur í næstu sókn. Sam Rickett átti þá langa sendingu sem Kevin Davies skallaði fyrir fætur Holden. Það reyndist síðan vera sigurmark Bolton. Grétar Rafn Steinsson sat allan tímann á bekknum en Sam Rickett átti mjög góðan leik í hægri bakverðinum og heldur áfram stöðu sinni. Rickett átti meðal annars þátt í báðum mörkum Bolton. Stephen Hunt tryggði Úlfunum þrjú stig í dag.Mynd/APStephen Hunt skoraði eina markið í 1-0 sigri Wolves á Birmingham en þetta var annar heimasigur Úlfanna í röð. Sigurinn dugði þó ekki Wolves til að sleppa úr fallsæti en liðið er í næstsíðasta sæti stigi á eftir Fulham og Wigan. Sigurmark Hunt kom eftir sendingu frá Sylvan Ebanks-Blake á lokamínútu fyrri hálfleiks. Wolves hafði unnið 3-2 sigur á Sunderland í síðasta heimaleik liðsins á undan þessum.
Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira