Meðalaldur áhorfenda á Old Trafford er 47 ár Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 26. desember 2010 14:30 Wayne Rooney leikmaður Manchester United á Old Trafford, heimavelli félagsins. Nordic Photos/Getty Images
Ensk úrvalsdeildarfélög gætu þurft að lækka miðaverð á heimaleik sína umtalsvert á næstu árum en ungir Englendingar velja frekar þann kost að horfa á beinar útsendingar á krám - í stað þess að mæta á leiki. Meðalaldur áhorfenda á heimaleiki enskra úrvalsdeildarliða fer hækkandi og sem dæmi má nefna að meðalaldurinn á heimaleikjum Manchester United á Old Trafford er 47 ár. Þetta er ekki innsláttarvilla, fjörtíu og sjö ár. Englendingurinn Stuart Dykes sem hefur frá barnæsku haldið með Manchester United segir í viðtali vð norska dagblaðið Aftenposten að ensk félagslið geti lært margt af liðum í efstu deild í Þýskalandi. Dykes starfar nú hjá þýska félaginu Schalke sem þýðandi og túlkur. Hann segir að áhugi Englendinga á Þýskalandi fari vaxandi. Það er oft á tíðum ódýrara að fljúga til Þýskaland og fara á leik - miðað við England. Dykes nefnir sem dæmi að miðaverð á heimaleiki Arsenal gegn þekktustu liðum ensku úrvalsdeildarinnar. Dýrustu miðarnir kosta um 17.000 kr., og þeir ódýrustu kosta um 9.000 kr. Að meðaltali er miðaverð á leik í efstu deild í Þýskalandi um 3.000 kr.Ungir stuðningsmenn Schalke fagna á heimavelli félagsins þar sem að boðið er upp á stæði og ódýra miða sem ungt fólk nýtir sér.Nordic Photos/Getty Images„Fjölskyldur hafa ekki efni á því að fara saman á leik í ensku úrvalsdeildinni. Það er erfitt að fá ársmiða á góðu verði og ensku liðin bjóða ekki upp á sérstök fjölskyldusvæði á lægra verði líkt og í Þýskalandi," segir Dykes en hann bendir einnig á þá staðreynd að mörg ensk úrvalsdeildarlið séu nú í eigu erlendra aðila sem hafi á margan hátt rofið á tengsl stuðningsmanna við félagið. „Hjá Schalke eru stuðningsmenn liðsins jafnframt félagsmenn og það eru 90.000 skráðir í félagið. Á Englandi eru stuðningsmannaklúbbar sem eru nánast í engum tengslum við félagið sjálft." Dykes telur að vert sé að skoða þann möguleika að bjóða upp á stúkumiða í stæði á Englandi. Eftir Hillsborough slysið þann 15. apríl árið 1989 var tekin sú ákvörðun að aðeins mætti sitja á leikjum í ensku úrvalsdeildinni. „Það er hægt að koma upp slíkum svæðum á þeim völlum sem eru til staðar á Englandi. Það er vel hægt að tryggja öryggi áhorfenda - líkt og gert er í Þýskalandi. Þar með væri hægt að lækka miðaverð og ungt fólk færi að mæta á völlinn á ný," bætti Dykes við.
Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Uppgjörið: FH-Apollon 1-0 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Fótbolti Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn