Ferguson segir þetta vera jöfnustu toppbaráttuna á sínum ferli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. desember 2010 22:00 Sir Alex Ferguson og Ole Gunnar Solskjær unnu nokkra titla saman. Mynd/Nordic Photos/Getty
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er að hefja sitt 25. ár sem knattspyrnustjóri félagsins og hann segir að baráttan um enska meistaratitilin hafi aldrei verið eins jöfn á hans ferli og einmitt núna. Manchester United hefur árið 2011 í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en liðið er með jafnmörg stig og nágrannarnir í Manchester City. Chelsea, Arsenal og Tottenham eru einnig til alls líkleg í baráttunni um titilinn. „Ég tel að öll þessi lið geti unnið titilinn og deildin er að spilast þannig að það eru óvænt úrslit í öllum umferðum. Við vorum svekktir með að tapa stigum á móti Birmingham en svo tapaði Arsenal tveimur stigum á móti tíu manna liði Wigan og Wolves fór til Liverpool og vann. Það á eftir að verða mikið um svona úrslit það sem eftir lifir af mótinu," sagði Ferguson sem segir þetta vera jöfnustu toppbaráttuna á sínum langa og farsæla ferli. „Þetta er mjög erfið deild og það eru fimm eða sex lið sem eru að keppa um titilinn. Það er alltaf mjög spennandi þegar munar svona litlu á efstu fjórum liðunum og þetta yrði algjör draumadeild ef að öll þessi fimm eða sex lið ætti enn möguleika á titlinum í vor," sagði Ferguson. Manchester United hefur eitt liða í Englandi ekki tapað ennþá leik á tímabilinu en Fergsuon er ekki mikið að velta því fyrir sér. „Þú býst aldrei við að fara í gegnum tímabil án þess að tapa. Ég myndi kannski velta þessu fyrir mér þegar það væru aðeins þrír leikir eftir en það er bara hluti af styrk góðs liðs að kunna að vinna sig út úr tapleikjum," sagði Ferguson.
Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira