Harry Redknapp óttast að Luka Modric verði frá í langan tíma eftir að hafa farið meiddur af velli í 1-1 jafntefli Tottenham gegn WBA.
Modric var frá í þrjá mánuði vegna meiðsla á síðasta tímabili og mun nú gangast undir frekari skoðanir.
Fyrir á meiðslalista Tottenham eru þeir Michael Dawson og Jermain Defoe.