Árása minnst vestanhafs 11. september 2010 04:30 Trúarleiðtogi múslíma í Flórída spurði brennuklerkinn, sem var tvístígandi í gær, hvað Jesús myndi gera. nordicphotos/AFAP
Að venju hafa Bandaríkjamenn skipulagt ýmsar minningarathafnir 11. september þetta árið, þegar níu ár eru liðin frá árás hryðjuverkamanna á landið. Meiri styr stendur þó um atburðina og ýmislegt þeim tengt þar vestra en áður. Áform múslíma um að opna mosku í New York, rétt hjá staðnum þar sem Tvíburaturnarnir stóðu, hafa farið fyrir brjóstið á mörgum sem tengja árásirnar beint við trú múslíma. Áform fámenns kristins safnaðar í Flórída um að brenna helgirit múslima þennan dag hafa ekki síður vakið andmæli, bæði þeirra sem óttast viðbrögð herskárra og strangtrúaðra múslíma víða um heim og hinna sem telja fráleitt að kenna múslímum almennt um árásirnar. Barack Obama forseti ætlar að taka þátt í minningarathöfn í Pentagon, byggingu varnarmálaráðuneytisins í Washington, sem varð fyrir einni farþegaþotunni af fjórum sem hryðjuverkamenn rændu og notuðu sem árásarvopn. Joe Biden varaforseti tekur þátt í annarri athöfn í New York, þar sem tveimur flugvélum var flogið á turna Heimsviðskiptastofnunarinnar, Tvíburaturnana, en þær Michelle Obama forsetafrú og Laura Bush, fyrrverandi forsetafrú, halda til Shanksville í Pennsylvaníu, en þar rétt hjá hrapaði fjórða farþegaþotan eftir að nokkrir farþeganna gerðu uppreisn gegn flugræningjunum. Nokkur óvissa ríkir um hvort Terry Jones, leiðtogi fimmtíu manna safnaðar í bænum Gainesville í Flórída, lætur verða af áformum sínum um að brenna Kóraninn. Hann gaf út tilkynningu í fyrrakvöld, eftir að Robert Gates varnarmálaráðherra hafði rætt við hann, um að hann væri hættur við. Síðar sagðist hann enn vera að hugsa málið. Á nokkrum stöðum í Afganistan tóku samtals nokkur þúsund manns í gær, á bænadegi múslíma, þátt í mótmælum gegn áformum prestsins. Sums staðar kom til átaka og meiddust á annan tug manna. Ekki fréttist af fjölmennum mótmælum annars staðar. Í Indónesíu, fjölmennasta múslímaríki heims, sagði klerkurinn Rusli Hasbi að Jones hefði þegar sært hjörtu múslíma hvort sem hann léti verða af brennunni eða ekki. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Fleiri fréttir Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Sjá meira