Sky Sports: Man City að vinna í því að kaupa Dzeko Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2010 09:45 Edin Dzeko. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Manchester City ætlar sér að kaupa einn heitasta sóknarmann þýsku deildarinnar í janúar ef marka má fréttir Sky Sports. Edin Dzeko, leikmaður Wolfsburg, hefur verið orðaður við mörg stórlið á síðustu misserum þar á meðal AC Milan og Juventus en City-menn ætla sér nú að krækja í kappann. Það vantar þó ekki framherja hjá Roberto Mancini, stjóra Manchester City, því Carlos Tevez hefur farið á kostum og þá skoraði Mario Balotelli þrennu í gær. Emmanuel Adebayor og Roque Santa Cruz eru þó líklega báðir á förum sem ætti að opna dyrnar fyrir Dzeko. Edin Dzeko er 24 ára Bosníumaður sem hefur skorað 66 mörk í 111 deildarleikjum með VfL Wolfsburg frá árinu 2007 auk þess að skora 17 mörk í 31 landsleik fyrir Bosníu. Dzeko hefur skorað 10 mörk í 17 deildarleikjum á þessu tímabili en það hefur þó lítið gengið hjá Wolfsburg-liðinu sem varð þýskur meistari 2008-09. Roberto Mancini lýsti yfir áhuga sínum á því að fá Dzeko á dögunum en samkvæmt heimildum Sky Sports þá er City tilbúið að borga Wolfsburg 30 milljónir evra strax og bæta síðan 5 milljónum evra við komist liðið inn í Meistaradeildina.
Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira