Rooney á MUTV: Síðustu dagar hafa verið erfiðir Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. október 2010 13:59 Wayne Rooney, stjóri United. Nordic Photos / Getty Images
Wayne Rooney var í viðtali á MUTV-sjónvarpsstöðinni í dag þar sem hann segir að síðustu daga hafa verið erfiðir fyrir sig og félagið. Viðtalið við Rooney má sjá í heild sinni á sjónvarpsvef Vísis, hér. „Já, ég er mjög ánægður," sagði Rooney. „Tímasetningin hefur verið nokkuð umdeild en ég er ánægður með að hafa loksins gengið frá þessum samningamálum. Vonandi get ég núna haldið áfram mínu starfi, náð fullri heilsu og byrjað að spila aftur." „Síðustu dagar hafa verið erfiðir fyrir mig og félagið. Ég vildi koma mínu sjónarmiði á framfæri og við komumst loksins að samkomulagi sem var besta mögulega niðurstaðan fyrir mig og félagið." Rooney sagði í yfirlýsingu sem birt var á miðvikudaginn að hann vildi fara frá félaginu og að hann efaðist um framtíðarhorfur þess. „Sem leikmanni United þykir mér vænt um félagið. Ég lýsti áhyggjum mínum við knattspyrnustjórann og David Gill [framkvæmdarstjóra]. Þetta hélt áfram út frá því og samningaviðræðurnar héldu í raun ekki áfram eftir þetta." „Svo á undanförnum dögum varð þessi vitneskja opinber sem gerði þetta allt mjög erfitt. Okkur, mér og félaginu, fannst mikilvægt að bregðast skjótt við." „Ég hef nú rætt við stjórann, David Gill og eigendurna og allir hafa þeir staðfest við mig að þetta sé rétta félagið fyrir mig. Hér mun ég áfram njóta velgengni og vinna titla." „Samningaferlið er mjög flókið. Þetta snýst um knattspyrnufélagið en líka um minn feril. Ég varð að hugsa mig vel og vandlega um."
Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti 42 ára aldursmunur á keppendum í 1500 metra hlaupi kvenna Sport María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Sjá meira