Manchester United staðfestir að Edwin van der Sar hættir í vor Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. desember 2010 12:00 Edwin van der Sar. Mynd/Nordic Photos/Getty
Edwin van der Sar, markvörður Manchester United, mun leggja skónna á hilluna í vor en Sir Alex Ferguson, stjóri liðsins, staðfesti þetta á blaðamannafundi í morgun. Það hefur verið mikið skrifað um framtíð hollenska markvarðarins sem varð fertugur á dögunum en nú er ljóst að hann spilar ekki fleiri tímabil á Old Trafford. Í kringum fertugsafmæli Edwin van der Sar í október sagði Eric Steele, markvarðarþjálfari Manchester United, að van der Sar væri á sínu síðasta ári en markvörðurinn svaraði því í fjölmiðlum og sagði að það væri tóm vitleysa því hann væri ekki búinn að ákveða neitt. „Við erum að skipuleggja okkur fyrir að þetta verði síðasta tímabilið hans," sagði Sir Alex Ferguson á blaðamannafundi í morgun fyrir leikinn á móti Sunderland á öðrum degi jóla. Edwin van der Sar.Mynd/Nordic Photos/Getty Manchester United er búið að kaupa danska markvörðinn Anders Lindegaard frá Aalesund og þá hefur Manuel Neuer, landsliðsmarkvörður Þjóðverja verið orðaður við enska stórliðið en Neuer hefur neitað að framlengja samning sinn við Schalke. Edwin van der Sar kom til Manchester United árið 2005 þá 35 ára gamall en hann hefur spilað 168 deildarleiki með félaginu og unnið sex stóra titla sem leikmaður United þar af þrjá meistaratitla. Hann hóf ferillinn með Ajax og lék með Juventus og Fulham áður en hann kom á Old Trafford.
Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Fleiri fréttir Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Sjá meira