Tveir reknir úr framkvæmdastjórn FIFA Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 18. nóvember 2010 18:30 AFP
Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, tók í dag þá ákvörðun að reka tvo úr framkvæmdastjórn FIFA vegna spillingarmáls sem kom upp vegna lokakeppni heimsmeistaramótsins 2018 og 2022. Nígeríumaðurinn Amos Adamu fékk þriggja ára bann og Reynald Temari sem er fulltrúi Eyjaálfu í framkvæmdastjórninni fékk eitt ár í bann en þeir þurfa að auki að greiða háar sektir. Breska dagblaðið Sunday Times kom upp um þá félaga en þeir voru grunaðir um að hafa þegið fé fyrir atkvæði sín í kosningu framkvæmdastjórnarinnar um hvar lokakeppni HM færi fram 2018 og 2022. Blaðamaður á þeirra vegum þóttist vera fulltrúi frá Bandaríkjunum og bauð þeim 800 þúsund pund í skiptum fyrir atkvæði þeirra. Bandaríkin og England voru á meðal þeirra þjóða sem lögðu fram boð í keppnirnar tvær. Bandaríkin dró svo tilboð sitt í keppnina sem haldin verður 2018 til baka og í kjölfarið drógu Englendingar boð sitt í 2022-keppnina til baka. Alls voru sex aðilar úrskurðaðir í bann hjá FIFA en fjórir aðrir aðilar sem áður gegndu ábyrgðarstöðum í framkvæmdastjórn FIFA fengu einnig bann. FIFA mun kjósa um hvar lokakeppni HM fer fram árið 2018 og 2022 þann 2. desember. Adamu og Temarii verða ekki með kosningarétt í því kjöri. Aðeins 22 munu greiða atkvæði í stað 24. Claudio Sulser, formaður siðanefndar FIFA sem fór yfir málið gerði grein fyrir ákvörðun FIFA í dag en hann gagnrýndi þrátt fyrir það fréttamennsku Sunday Times sem kom upp þá félaga. Englendingar eru á meðal þeirra þjóða sem hafa óskað eftir lokakeppninni árið 2018 og telur Sulser að enskir fjölmiðlar geri allt til þess að koma höggi á keppinauta þeirra í því kjöri.
Fótbolti Mest lesið Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sport Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Maður dagsins á HM: „Það var ekki ég sem uppgötvaði Vini Jr.“ Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Átján ára markahæst: Nýtir pirringinn sem orku og fer glaðbeitt á EM Gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Martin fékk stóra rós í hnappagatið Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum „Ég held að við séum á heimleið“ Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Segja Breka á leiðinni til Benfica Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Martraðarvítaspyrnukeppni og lærisveinar Sigga Ragga úr leik Okeke farinn frá Álftanesi Børge Lund tekur við stórliði Kiel Thelma hetjan og Häcken á toppinn Sviss tryggði sér toppsætið eftir sigur á Kanada Hörð keppni milli Margrétar Láru og Mistar Bruno um Ronaldo: „Mikilvægt fyrir okkur að hann skoraði“ Kerfið hrundi á Wimbledon-mótinu vegna mikils hita Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Sjá meira