Ancelotti: Þessi sigur heldur okkur inn í titilbaráttunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. desember 2010 09:15
Carlo Ancelotti, stjóra Chelsea, var mikið létt eftir 1-0 sigur liðsins á Bolton í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Þetta var fyrsti sigur liðsins í sjö leikjum og hann endaði versta gengi liðsins síðan 1999. Chelsea er nú fjórum stigum á eftir toppliði Manchester United. „Það mikilvægasta af öllu var að ná að breyta andrúmsloftinu, enda þessa hrinu og ná að vinna leikinn," sagði Carlo Ancelotti eftir leikinn. „Þetta var mikilvægt skref í rétt átt," sagði Ancelotti en það var Florent Malouda sem skoraði sigurmarkið eftir frábæran undirbúning Didier Drogba og Essien. Það má sjá svipmyndir úr leiknum með því að smella hér fyrir ofan. „Ég er ekki viss um að allt verði í lagi eftir þetta því við verðum að bíða og sjá til með það. Við verðum að halda áfram að standa okkur en þessi sigur heldur okkur inn í titilbaráttunni," sagði Ancelotti en Chelsea var með fimm stiga forskot á topppnum fyrir aðeins sjö vikum síðan. „Við vorum svolítið hræddir í fyrri hálfleiknum sem var eðlilegt af því að það var mikil pressa á liðinu í þessum leik. Seinni hálfleikurinn var mun betri og markið létti mikilli pressu af liðinu," sagði Ancelotti. Owen Coyle, stjóri Bolton, sagði Drogba hafa verið rangstæðan áður en hann lagði upp sigurmarkið fyrir Malouda. „Ég veit ekki hvort þetta var rangstaða eða ekki en það skiptir mig líka engu máli," sagði Ancelotti enda kannski kominn tími á að hlutirnir dyttu eitthvað með hans liði.
Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira