Manchester City tókst ekki að komast í toppsætið - tapaði fyrir Everton Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2010 21:55 Everton-menn fagna hér öðru marka sinna í kvöld. Mynd/AP
Manchester City tókst ekki að taka toppsætið af nágrönnum sínum í Manchester United í kvöld og vera á toppnum yfir jólin. Manchester City tapaði 1-2 á heimavelli á móti Everton en gestirnir úr Bítlaborginni höfðu ekki unnið leik síðan 30. október. Manchester City er því áfram með 32 stig, tveimur stigum á eftir Manchester United en búið að spila tvo fleiri leiki. Everton vann sinn fyrsta sigur í átta leikjum og komst með þessum sigri upp að hlið Stoke í 13. og 14. sæti. Tim Cahill fékk sannkallaða jólagjöf frá Manchester City vörninni á 4. mínútu þegar hann fékk að skalla boltann í markið óáreittur á markteig eftir fyrirgjöf Seamus Coleman. Áður hafði City-vörnin misst af fyrirgjöf Leighton Baines sem barst síðan á endanum til Coleman. Leighton Baines kom Everton síðan í 2-0 á 19. mínútu með óvæntu hægri fótar skoti úr teignum eftir sendingu frá Tim Cahill. Baines hóf sóknina og Victor Anichebe átti síðan lykilsendingu inn á Cahill í teignum og Ástralinn lagði hann út á Baines sem kom aðvífandi og skoraði.Carlos Tevez náði ekki að skora í kvöld.Mynd/APVictor Anichebe fékk sitt annað gula spjald á 60. mínútu fyrir brot á Pablo Zabaleta og Everton var því manni færri síðasta hálftíma leiksins. David Moyes, stjóri Everton, var það að undirbúa það að skipta Anichebe útaf fyrir Louis Saha. Manchester City náði að minnka muninn á 72. mínútu þegar Phil Jagielka varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark eftir sendingu fyrir frá Yaya Toure. David Silva og Adam Johnson höfðu þá opnað Everton-vörnina með laglegu spili. Manchester City liðið pressaði mikið undir lokin en Tim Howard varði margoft glæsilega í marki Everton og tryggði sínum mönnum öll þrjú stigin. Kolo Toure, varnarmaður Manchester City, endaði síðan leikinn á því að fá tvö gul spjöld í uppbóttartíma.
Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Golf Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Fótbolti Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Enski boltinn Fleiri fréttir Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Sjá meira