Erlent

Fékk slettu af grænum búðingi

Peter Mandelson viðskiptaráðherra Breta fékk heldur óblíðar móttökur hjá konu sem vill stöðva stækkun Heathrow-flugvallar í Lundúnum. Hún vatt sér að ráðherranum og sletti á hann grænum búðingi.

Mandelson hefur mátt þola ýmislegt á stjórnmálaferli sínum. Hann hefur hrökklast tvívegis úr ríkisstjórn vegna spillingamál en var tekinn aftur í ríkisstjórn í haust til að aðstoða í kreppunni. Hann hefur enda verið talinn harður í horn að taka í klækjastjórnmálum og verið nefndur myrkrahöfðinginn af andstæðingum.

Mikil andstaða hefur verið við stækkun Heathrow flugvallar vegna aukins útblásturs gróðurhúsalofttegunda og aukinnar hljóðmengunar. Helsta ástæða mótmælanna eru þó sú staðreynd að íbúar á framkvæmdasvæðinu þurfa margir að flytja og að lífsgæði þeirra sem eftir verði skerðist.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×