Enski boltinn

Sbragia gáttaður á Macheda

Nordic Photos/Getty Images

Ricky Sbragia, stjóri Sunderland, átti ekki til orð eftir að ítalski táningurinn Federico Macheda tryggði Manchester United öll stigin í leik liðanna í dag.

Sunderland spilaði á tíðum ljómandi fótbolta í dag en eftir að liðið náði að jafna leikinn í 1-1 á heimavelli sínum var það hetjan Macheda sem hirti af þeim stigin.

"Hann er mættur drengurinn. Hvort hann veit af því sjálfur er aftur annað mál. Allt sem hann snertir breytist í gull núna og hann á það skilið. Hann er góður leikmaður," sagði Sbragia eftir leikinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×