Ástralir skelfingu lostnir yfir hákarlaárásum 12. janúar 2009 14:00
Ástralskir baðstrandagestir eru í uppnámi í kjölfar þess að þrjár hákarlaárásir hafa átt sér stað við strendur landsins á síðasta sólarhring. Hákarlaárásir eru mjög sjaldgæfar og því vekja þrjár á nær sama tíma mikla skelfingu. Í morgun lenti kafari í því að hákarl réðst á hann suður af Sidney. Maðurinn slapp lifandi en var með um 40 sár eftir hárbeittar hákarlstennurnar. Kafarinn Steven Foggerty segist hafa fundið sting í annari löppinni og strax áttað sig á hverju sætti. „Ég leit niður til þess að athuga hvort lappirnar væru enn á sínum stað og sem betur fer voru þær það." Foggerty segist að því búnu hafa lamið og barið frá sér af öllum mætti til þess að verjast frekari árásum. Það bar árangur og forðaði hákarlinn sér. Árásin á Foggerty var sú þriðja í röðinni á einum sólarhring. Hannah Mighall, þrettán ára gömul stúlka var á brimbretti undan ströndum Tasmaníu þegar tæplega fimm metra langur hákarl réðst á hana. Frændi hennar sem varð vitni að árásinni lýsti sagði að honum hefði liðið eins og hann væri að horfa á hryllingsmynd á borð við Jaws. Hákarlinn dró stúlkuna undir yfirborð sjávar að minnsta kosti tvisvar sinnum en sleppti henni að lokum. Hún var flutt á sjúkrahús með hraði og mun lifa árásina af þrátt fyrir mikinn blóðmissi. Þriðja árásin var svo gerð á annan brimbrettaáhugamann sem var að fylgjast með hópi höfrunga að leik þegar hvítháfur beit hann í lærið þannig að stór hluti þess lenti í hákarlskjaftinum. Maðurinn komst við illan leik til strandar þaðan sem hann var fluttur með hraði á sjúkrahús. Þá eru aðeins tvær vikur síðan stór hvítháfur náði brimbrettamanni í Ástralíu. Dýrið beit hann og dró undir yfirborðið og hefur hvorki fundist tangur né tetur af manninum síðan. Þessar tíðu árásir hafa orsakað mikla hræðslu á meðal baðstrandagesta þrátt fyrir að hákarlafræðingar reyni að fullvissa fólk um að um hreinar tilviljanir sé að ræða og að hákörlum hafi ekki farið fjölgandi við strendur Ástralíu. Hins vegar sé mannfólkinu að fjölga og þarafleiðandi eru fleiri á ströndunum en áður. Fjöldi dauðsfalla af hákarlabiti í Ástralíu hefur verið sá sami í fimmtíu ár. Um 1,2 dauðsföll eru af þeim sökum á hverju ári. Sérfræðingar benda á að mannakjöt sé ekki efst á óskalista hákarlsins, annars væri enginn öruggur í sjónum.
Mest lesið Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Sjá meira