SÞ fordæma kjarorkutilraunir N-Kóreumanna 25. maí 2009 21:18 Bygging Sameinuðu þjóðanna í New York. Mynd/GVA
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna lýsri megnri andúð yfir kjarnorkutilraunum Norður-Kóregumanna og fordæmir þær. Ráðið kom saman til fundar í kvöld vegna kjarnorkutilrauna Norður-Kóreumanna og samþykkti ályktun einróma um málið. Öryggisráðið segir kjarnorkutilraunirnar brjóta á skýran hátt gegn fyrri ályktun ráðsins frá árinu 2006. Fjölmörg ríki heims hafa fordæmt kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna síðustu og segir Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hana ógn við frið og öryggi í heiminum. Norður-Kóreumenn segjast hins vegar vera að verja fullveldi sitt og tryggja frið á Kóreuskaganum. Kjarnorkusprengja var sprengd neðanjarðar skömmu eftir miðnætti að íslenskum tíma. Í yfirlýsingu í norður-kóreska ríkissjónvarpinu í morgun var sagt að allt hefði gengið að óskum. Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa ekki viljað upplýsa hvar sprengjan var sprengd en jarðmælingar Suður-Kóreumanna þykja sýna að það hafi verið í norðausturhluta landsins, nærri bænum Kilju. Þar var fyrsta tilraunasprenging Norður-Kóreumanna gerð í október 2006. Þá var sprengjan um eitt kílótonn að mati bandarískra sérfræðinga.Til jafns við sprengjun sem varpað var á Nagasaki Sprengjan í gær er talin hafa verið tuttugu sinnum öflugri og til jafns á við þá sem Bandaríkjamenn vörpuðu á japönsku borgina Nagasaki við lok seinna stríðs. Younhap fréttastofan í Suður-Kóreu greindi frá því skömmu eftir kjarnorkutilraunina að Norður-Kóreumenn hefðu skotið þremur skammdrægum eldflaugum á loft í tilraunaskyni. Stjórnvöld í Pyongyang hafa ekki staðfest það.Ísland hefur fordæmt kjarnorkutilraunina Fjölmörg ríki heims, þar á meðal Ísland, hafa fordæmt kjarnorkutilraunina harðlega. Bandaríkjaforseti segir aðgerðir Norður-Kóreumanna ógna friði og öryggi í heiminum. Rússar og Kínverjar vilja aftur viðræður við Norður-Kóreumenn svo semja megi við þá um að leggja kjarnorkuáætlun sína á hilluna.Vilja koma í veg fyrir afskipti umheimsins Sérfræðingar segja ýmist að Norður-Kóreumenn hafi með tilrauninni viljað koma sínum málum ofar á aðgerðalista nýrra Bandaríkjastjórnar. Aðrir að það hafi átt að koma í veg fyrir möguleg afskipti umheimsins þegar komi að því að skipta um leiðtoga en mikið hefur verið rætt og ritað síðustu misseri um meint heilsuleysi leiðtogans Kim Jong-il.
Tengdar fréttir N-Kórea: Þremur eldflaugum skotið á loft Auk þess að sprengja kjarnorkusprengju neðanjarðar í nótt hafa Norður-Kóreumenn það sem af er morgni skotið á loft þremur skammdrægum eldflaugum. Ekki er ljóst á þessari stundu hvert flaugunum var miðað eða hvar þær lentu. 25. maí 2009 09:32 Össur fordæmir kjarnorkutilraunir harðlega Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir jákvætt hversu mjög alþjóðasamfélagið hafi sameinast í sterkri fordæmingu á kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna. Íslensk stjórnvöld fordæmi hana harðlega. 25. maí 2009 12:07 Alþjóðasamfélagið verður að bregðast við Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fordæmdi í dag kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna og sagði ljóst að alþjóðasamfélagið verði að bregðast við. „Kjarnorku- og eldflaugaáætlanir Norður-Kóreu eru alvarleg ógn við öryggi og frið í heiminum og ég fordæmi þessar æfingar harðlega,“ sagði Obama á blaðamannafundi í Washington í dag. 25. maí 2009 15:13 Norður-Kóreumenn sprengdu kjarnorkusprengju í nótt Norður-Kóreumenn sprengdu kjarnorkusprengju neðanjarðar í tilraunaskyni í morgun. Auk þess skutu þeir á loft skammdrægri eldflaug. 25. maí 2009 07:19 Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira
N-Kórea: Þremur eldflaugum skotið á loft Auk þess að sprengja kjarnorkusprengju neðanjarðar í nótt hafa Norður-Kóreumenn það sem af er morgni skotið á loft þremur skammdrægum eldflaugum. Ekki er ljóst á þessari stundu hvert flaugunum var miðað eða hvar þær lentu. 25. maí 2009 09:32
Össur fordæmir kjarnorkutilraunir harðlega Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir jákvætt hversu mjög alþjóðasamfélagið hafi sameinast í sterkri fordæmingu á kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna. Íslensk stjórnvöld fordæmi hana harðlega. 25. maí 2009 12:07
Alþjóðasamfélagið verður að bregðast við Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fordæmdi í dag kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna og sagði ljóst að alþjóðasamfélagið verði að bregðast við. „Kjarnorku- og eldflaugaáætlanir Norður-Kóreu eru alvarleg ógn við öryggi og frið í heiminum og ég fordæmi þessar æfingar harðlega,“ sagði Obama á blaðamannafundi í Washington í dag. 25. maí 2009 15:13
Norður-Kóreumenn sprengdu kjarnorkusprengju í nótt Norður-Kóreumenn sprengdu kjarnorkusprengju neðanjarðar í tilraunaskyni í morgun. Auk þess skutu þeir á loft skammdrægri eldflaug. 25. maí 2009 07:19