Erlent

Norður-Kóreumenn sprengdu kjarnorkusprengju í nótt

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Norður-Kóreumenn sprengdu kjarnorkusprengju neðanjarðar í tilraunaskyni í morgun. Auk þess skutu þeir á loft skammdrægri eldflaug. Norðurkóreska fréttastofan greindi frá þessu í morgun og boðuðu stjórnvöld í Japan og Suður-Kóreu þegar til neyðarfundar vegna sprengigleði þessara nágranna sinna. Eins mun öryggisráð Sameinuðu þjóðanna funda um málið í dag og bandarísk stjórnvöld hafa lýst áhyggjum sínum af málinu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×