Erlent

Alþjóðasamfélagið verður að bregðast við

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fordæmdi í dag kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna og sagði ljóst að alþjóðasamfélagið verði að bregðast við. „Kjarnorku- og eldflaugaáætlanir Norður-Kóreu eru alvarleg ógn við öryggi og frið í heiminum og ég fordæmi þessar æfingar harðlega," sagði Obama á blaðamannafundi í Washington í dag.

Hann bætti því við að Bandaríkin og alþjóðasamfélagið verði að bregðast við á viðeigandi hátt en forsetinn fór ekki nánar út í með hvaða hætti það yrði.






Tengdar fréttir

N-Kórea: Þremur eldflaugum skotið á loft

Auk þess að sprengja kjarnorkusprengju neðanjarðar í nótt hafa Norður-Kóreumenn það sem af er morgni skotið á loft þremur skammdrægum eldflaugum. Ekki er ljóst á þessari stundu hvert flaugunum var miðað eða hvar þær lentu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×