Innlent

Birgir: Ólöglegur þingfundur

Birgir Ármannsson.
Birgir Ármannsson. Mynd/Anton Brink
Annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna var frestað á Alþingi á tíunda tímanum í gærkvöldi. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fullyrti að fundurinn væri ólöglegur.

Þingfundur hófst klukkan hálf ellefu í gær og var Icesave eina málið sem komst á dagskrá. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gerðu athugasemdir við viðveru stjórnarliða og þegar leið á daginn gerðu þeir auk þess athugasemdir við fundarstjórn forseta og skipulag þingstarfanna.

Hálftíma hlé var gert klukkan sjö. Þegar fundurinn hófst á nýjan leik gagnrýndu þingmenn stjórnarandstöðunnar að þingfundi yrði haldið áfram án þess að fyrir því væri samkomulag milli þingflokka og án þess að slík tillaga hefði verið borin upp og samþykkt sérstaklega af þeim þingmönnum sem viðstaddir voru umræðuna.

„Hæstvirtur forseti ég vil fyrst segja að sá fundur sem hér fer fram er ekki löglegur. Hann er ekki í samræmi við þingsköp Alþingis," sagði Birgir og vísaði til laga um þingsköp og lögskýringargögn.

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sagði að samkvæmt túlkun yfirmanna þingsins á þingsköpum væri í lagi að halda fundi áfram.

„Virðulegur forseti. Það er ljúft að drottna en vald er vandmeðfarið," sagði Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann undraðist rökstuðning Ástu og að hún skyldi vísa í orð starfsmanna Alþingis.

Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði að engum líki að vera í vinnunni á kvöldin og fram á nótt. Ekkert kæmi út úr umræðu sem stæði fram á nótt þegar allir væru orðnir þreyttir.

Alþingi kemur næst saman í fyrramálið.


Tengdar fréttir

Vill að forseti Alþingis taki landráðabrigsl til skoðunar

Jóhanna Sigurðardóttir vill að forsætisnefnd Alþingis taki það til sérstakrar umræðu hversu oft ráðherrar í ríkisstjórninni hafi verið brigslaðir um landráð og að hafa ekki gætt hagsmuna Íslendinga í Icesave deilunni. Þetta sagði Jóhanna í fyrirspurnatíma á Alþingi í morgun.

Þingfundur í dag

Þingfundur hefst innan stundar á Alþingi þar sem annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna verður fram haldið, en ekki tókst að ljúka henni í gærkvöld. Sex verða á mælendaskrá í upphafi fundar.

Þvertaka fyrir málþóf

Fullkomin óvissa ríkir um hvenær fjárlög og skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar koma á dagskrá Alþingis vegna togstreitu stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar um Icesave. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa talað um Icesave fyrir hálftómum sal í rúmlega þrjátíu klukkustundir.

Jóhanna ræðir Icesave þegar hennar tími er komin

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segist ekki ætla að ræða Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar á Alþingi fyrr en hennar tími sé kominn. Forsætisráðherra hefur enn ekki tekið til máls um frumvarpið sem nú er í annarri umræðu.

Ræddu um skipulag þingfundar í 49 mínútur

Þingmenn ræddu í 49 mínútur við upphaf þingfundar í dag hvort að fram ætti að fara atkvæðagreiðsla um það hvort ræða ætti Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar fram á kvöld. Þráinn Bertelsson, þingmaður utan flokka, sagði umræðuna fyrir neðan virðingu Alþingis.

Siv: Icesave hefur ekkert með ESB að gera

„Ég held að ESB hafi ekkert þetta mál að gera en ég heyri að það eru margir sem vilja tengja þetta saman. Sérstaklega ESB andstæðingar,“ sagði Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag, en annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna var fram haldið í morgun. Þingmaðurinn sagðist ennfremur ekki eiga von á því að Icesave málið komi til með að trufla umsóknarferlið.

Kvörtuðu undan fjarveru stjórnarliða

Þingmenn stjórnarandstöðunnar gerðu alvarlegar athugasemdir við fjarveru ráðherra og stjórnarliða í umræðum um Icesave í upphafi þingfundar í dag og hvort að ræða eigi um málið á kvöldfundi. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagði ríkisstjórnina hafa komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, óskaði eftir því að greidd yrði atkvæði með nafnakalli um hvort að ræða ætti málið fram á kvöld.

Icesave tefur afgreiðslu skattamála

Þingfundi lauk á öðrum tímanum í nótt og var þá umræðu um Icesave-frumvarpið frestað en henni verður fram haldið í dag. Fyrir lok þingfundar var atkvæðagreiðsla um dagskrártillögu frá stjórnarandstöðuflokkunum um að dagskrá dagsins í dag yrði með þeim hætti að fyrst yrðu skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar tekin til umræðu auk annarar umræðu um frumvarp til fjáraukalaga. Síðan yrði hafist handa við að ræða icesave málið.

Boða kvöldfundi en mæta ekki sjálfir

Tuttugu og fjórir þingmenn létu að sér kveða í heitum umræðum við upphaf þingfundar þar sem stjórnarandstaðan mótmælti því að halda ætti kvöldfund í þinginu til að ræða stjórnarfrumvarp um ríkis­ábyrgð.

„Ég er svöng"

Annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna var fram haldið á Alþingi í morgun. Þegar leið á umræðuna hvatti formaður Hreyfingarinnar forseta Alþingis til þess að gera matarhlé þar sem hún væri svöng. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins sagði að um réttlætismál væri að ræða. Þingmenn ættu að fá matarhlé.

Áhersla lögð á að klára Icesave fyrir mánaðamót

Greiðsluskylda Tryggingasjóðs innstæðueigenda vegna Icesave varð virk fyrir rúmum mánuði og segir fjármálaráðherra mikilvægt að klára afgreiðslu Icesave í þessum mánuði. Ekki sér hins vegar fyrir endann á ræðum stjórnarandstöðunnar um málið.

Birkir J. taldi sig niðurlægðan

Önnur umræða um Icesave-málið, sem framhaldið var á þingi í gær, gekk treglega. Réði óánægja stjórnarandstæðinga með fjarveru stjórnarliða mestu um en lengst af voru stjórnarandstæðingar einir í þingsalnum. Margsinnis voru gerðar athugasemdir við fjarveruna, lagt til að þingfundi yrði frestað og önnur mál tekin á dagskrá.

Þingmenn ræða um Icesave

Önnur umræða um frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave reikninga Landsbankans heldur áfram á Alþingi í dag. Fjallað var um frumvarpið í fyrradag en þingfundi lauk rétt fyrir miðnætti. Þá voru enn níu þingmenn á mælendaskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×