„Ég er svöng" 28. nóvember 2009 14:01 „Ég er svöng,“ sagði Margrét þegar hún gerði athugasemdir við fundarstjórn Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, á þingfundi fyrr í dag. Mynd/Daníel Rúnarsson
Annarri umræðu um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinganna var fram haldið á Alþingi í morgun. Þegar leið á umræðuna hvatti formaður Hreyfingarinnar forseta Alþingis til þess að gera matarhlé þar sem hún væri svöng. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins sagði að um réttlætismál væri að ræða. Þingmenn ættu að fá matarhlé. Sex voru á mælendaskrá þegar þingfundi var slitið í gærkvöld en frá því önnur umræða hófst um málið má segja að stjórnarandstöðuþingmenn hafi talað samfleytt fyrir hálftómum sal. Á meðan bíða fleiri brýn mál meðferðar eins og fjárlögin, breytingar á skattkerfinu og tekjuöflun ríkisins. Þingfundur hófst að nýju klukkan hálf ellefu í morgun. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gerðu athugasemdir við fjarveru ráðherra og stjórnarliða. Þegar leið á daginn gerðu þeir auk þess athugasemdir við fundarstjórn forseta og tilhögun þingfundarins. „Frú forseti. Mér er vandi á höndum. Ég er þjóðkjörin fulltrúi og mér er skylt að sækja þingfundi en ég er svöng. Því vil ég beina þeim tilmælum til háttvirts forseta að hann geri hlé á þessum þingfundi svo við getum öll nærst," sagði Margrét Tryggvadóttir, formaður Hreyfingarinnar. Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, sagði um réttlætismál væri að ræða. Þá benti hann á þá staðreynd að enginn stjórnarliði væri á mælendaskrá. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði að Alþingi væri furðulegur vinnustaður. Þingflokksformannafundur verður haldinn síðar í dag til að ræða þinghaldið. Nú er 17 þingmenn stjórnarandstöðunnar á mælendaskrá.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira