Áhersla lögð á að klára Icesave fyrir mánaðamót 27. nóvember 2009 12:04
Greiðsluskylda Tryggingasjóðs innstæðueigenda vegna Icesave varð virk fyrir rúmum mánuði og segir fjármálaráðherra mikilvægt að klára afgreiðslu Icesave í þessum mánuði. Ekki sér hins vegar fyrir endann á ræðum stjórnarandstöðunnar um málið. Önnur umræða um seinna Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar hófst á fimmtudag í síðustu viku og hélt síðan áfram á þriðjudag og í gær og verður framhaldið á Alþingi í dag. Nú eru 18 þingmenn stjórnarandstöðunnar á mælendaskrá og ef þeir nota allir ræðutíma sinn til fulls tæki sú umræða rúma sex klukkustundir. Ekkert hindrar stjórnarandstöðuþingmenn hins vegar í að setja sig á mælendaskrá og geta þeir fræðilega séð talað um málið eins lengi og þeim sýnist. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir ríkisstjórnina leggja áherslu á að klára Icesavemálið fyrir mánaðamót. Að auki segir fjármálaráðherra mikilvægt að þingmenn hafi tíma til að afgreiða fjárlög, skattafrumvörp og önnur mál sem bundin séu áramótunum með vönduðum hætti. Stjórnarandstaðan hefur boðið að Icesave verði ýtt til hliðar og önnur mikilvæg mál tekin til afgreiðslu. Að loknum óundirbúnum fyrirspurnum sem lauk klukkan ellefu, ræddu þingmenn fundarstjórn forseta í fjörtíu mínútur. Önnur umræða um Icesave hélt síðan áfram klukkan tuttugu mínútur fyrir tólf. Þá hélt Tryggvi Þór Herbertsson Sjálfstæðisflokki áfram ræðu sinni sem hann gerði hlé á þegar þingfundi lauk upp úr klukkan eitt í nótt.
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira