Birkir J. taldi sig niðurlægðan 28. nóvember 2009 01:00 Birkir J. Jónsson Varaformaður Framsóknarflokksins sagði sér misboðið í ræðu sem hann flutti á þingi í gær.
Önnur umræða um Icesave-málið, sem framhaldið var á þingi í gær, gekk treglega. Réði óánægja stjórnarandstæðinga með fjarveru stjórnarliða mestu um en lengst af voru stjórnarandstæðingar einir í þingsalnum. Margsinnis voru gerðar athugasemdir við fjarveruna, lagt til að þingfundi yrði frestað og önnur mál tekin á dagskrá. Mest var óánægjan með fjarveru formanns og varaformanns fjárlaganefndar, Guðbjarts Hannessonar og Björns Vals Gíslasonar. „Þeir bera meginábyrgð á flutningi málsins,“ segir Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, í samtali við Fréttablaðið. Hann sagði í ræðu á þingi í gær að sér væri misboðið, brotið væri á rétti hans og fjarvera tvímenninganna væri niðurlægjandi fyrir hann. „Samkvæmt þingsköpum ber mönnum að sækja þingfundi. Þegar rædd eru mál af þessari stærðargráðu ber ábyrgðarmönnum þess skýlaus skylda til að vera við umræðuna,“ segir Birkir Jón sem hneykslaðist jafnframt á forseta að gera ekki hlé á umræðunni þar til tvímenningarnir kæmu í hús. „Niðurlægingin felst í því að ég hef lagt á mig vinnu við að setja mig inn í málið, samið ræðu með spurningum til ábyrgðarmanna þess og allt er þetta til lítils þegar þeir eru ekki á staðnum. Í því felst niðurlæging,“ sagði Birkir. Guðbjartur og Björn Valur voru á fundi starfshóps um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins.- bþs
Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Fleiri fréttir Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýi fækkar en moskítóflugan ekki dauð úr öllum æðum Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja Sjá meira