Erlent

Friðarverðlaun Nóbels: Obama eða Tsvangirai

Morgan Richard Tsvangirai.
Morgan Richard Tsvangirai.

Það var uppi fótur og fit þegar norska akademían tilkynnti að friðarverðlaun Nóbels féllu í skaut Barack Obama, forseta Bandaríkjanna. Leiðtogar annarra landa sögðust undrandi en óskuðu forsetanum til hamingju. Á bresku fréttastofunni SKY féllu þau ummæli að Obama hefði fengið verðlaunin fyrir það eitt að vera ekki Georg Bush, forveri sinn í embætti.

Twitter hrundi

Samskiptasíðan Twitter hrundi samkvæmt Daily Mail vegna fregnanna og álitsgjafar, bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum, eru beinlínis steinhissa.

Og eðlilega. Obama er búinn að vera forseti í tæpa níu mánuði. Að auki þá standa Bandaríkin í tveimur blóðugum stríðsrekstrum, annarsvegar í Írak og svo Afganistan.

Það var síðast í gær sem það kom fram á Reuters að æðsti hershöfðingi bandaríska hersins hefði krafist þess að 40 þúsund hermenn til viðbótar yrðu sendir til Afganistan vilji Bandaríkin sigra. Obama þarf að taka þessa ákvörðun sem fyrst. Friðarverðlaunin munu eflaust flækja þá ákvörðun.

Sá sem tapaði

Þá vekur athygli að maðurinn sem einnig var tilnefndur til verðlaunanna var Morgan Richard Tsvangirai, forsætisráðherra Zimbabwe. Hann hefur barist í fjöldamörg ár fyrir auknum borgaralegum réttindum fyrir þegna landsins. Þá hefur hann eldað grátt silfur við einræðisherrann Robert Mugabe, forseta Zimbabwe síðan á níunda áratugnum þegar þeir voru saman í Zanu PF flokknum.

Síðast var Tsvangirai handtekinn árið 2008. Þá var hann á leiðinni á trúarlega hátíð í heimaborg sinni. Leyniþjónusta Zimbawe, undir stjórn Mugabe, þjálfuð í Norður-kóreu, handtók Tsvangirai og pyntaði hann hrottalega. Handtakan var fordæmd í nær öllum vestrænum ríkjum.

Tsvangirai hefur margsinnis verið handtekinn. Auk þess hefur Mugabe áreitt hann og flokksmenn hans til þess að koma í veg fyrir eðlilegt mótframboð í kosningum.

Verðlaunaður fyrir baráttu sína

Árið 2001 fékk Tsvangirai Silfurrósina. Það eru heiðursverðlaun sem hlotnast þeim sem hafa unnið þrotlaust að mannréttindum og bættum borgaralegum réttindum í ríkjum þar sem kúgun og ofbeldi eru við lýði. Sama ár var hann handtekinn og ákærður fyrir að hóta Mugabe lífláti. Þá lét hann þessi fleygu ummæli falla:

„Hún er löng röðin af einræðisherrum sem hafa neitað að gefa völd sín eftir friðsamlega - og þegnar þeirra hafa ávallt bylt þeim með með ofbeldi."

Ákæran var dregin til baka tveimur árum síðar.

Sögulegt bandalag og hrikalegur missir

Það dró til tíðinda í janúar á þessu ári. Þá gerði Tsvangirai sögulegt bandalag við Mugabe þar sem hann ákvað að gerast forsætisráðherra í ríkisstjórn hans.

Það var þó ekki endirinn á harðri baráttu leiðtogans því Tsvangirai varð fyrir alvarlegu persónulegu áfalli í mars á þessu ári. Þá ók flutningabíll yfir á öfugan vegarhelming framan á bifreið Tsvangirai og eiginkonu hans með þeim afleiðingum að hún lést.

Opinbera niðurstaðan var sú að ökumaður flutningabifreiðarinnar hefði sofnað undir stýri. Aftur á móti gruna margir að Mugabe hafi ætlað að koma sínum gamla andstæðingi endanlega fyrir kattanef.

Hugsanlega morðtilraun

Tom McDonald, sendiherra Bandaríkjanna í Zimbabwe, sagði að um morðtilraun hefði verið að ræða. Hann vill meina að grunsamlega margir andstæðingar Mugabe hafi látist í slysum sem svipa til umferðaslyssins sem varð eiginkonu Tsvangirai að bana.

Sjálfur vildi Tsvangirai ekki taka undir ásakanirnar heldur hélt hann ótrauður áfram. Aðeins mánuði síðar drukknaði barnabarn hans í sundlaug á heimili hans. Ekki hefur verið sannað að andlát barnsins hafi borið að á dularfullan hátt.

Síðan Tsvangirai varð forsætisráðherra hafa mannréttindabrotum í Zimbabwe stórfækkað. Þau eru þó enn til staðar.

Alls voru 205 einstaklingar tilnefndir til friðarverðlaun Nóbels. Tsvangirai þótti líklegastur til þess að hreppa hnossið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×