Enski boltinn

Vonar að Coventry haldi í Aron

AFP

Clinton Morrison, leikmaður Coventry í ensku 1. deildinni, segist vonast til að félagið haldi í efnilegustu leikmenn sína fyrir baráttuna á næstu leiktíð.

Aron Gunnarsson hefur átt fína leiktíð hjá Coventry líkt og þeir Scott Dann, Daniel Fox og Keiren Westwood og Morrison á von á að þeir verði eftirsóttir í sumar.

 

"Það er gott að félagið vill framlengja samninga þeirra, en vandamálið byrjar fyrst í sumar þegar gammarnir koma með stór tilboð í þá og reyna að lokka þá frá félaginu," sagði Morrison í samtali við Coventry Telegraph.

"Þetta eru toppleikmenn og ég vona að þeir verði hér áfram, því við munum þurfa á þeim að halda á næstu leiktíð ef við ætlum okkur lengra," sagði Morrison.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×