Erlent

Byltingarráðið ógildir ekki forsetakosningarnar

Guðjón Helgason skrifar
Ali Khamenei æðstiklerkur Írans. Mynd/AP
Ali Khamenei æðstiklerkur Írans. Mynd/AP
Byltingarráðið í Íran ætlar ekki að ógilda forsetakosningarnar sem fram fóru í landinu fyrr í mánuðinum enda bendi ekkert til alvarlegra annmarka á framkvæmd þeirra. Stjórnarandstæðingnar eru hvattir til að mótmæla frekar.

Tveir frambjóðendur í kosningunum sem lutu í lægra haldi fyrir Mahmoud Ahmadinejad, forseta Írans, í kosningunum tólfta þessa mánaðar hafa sakað forsetann og stuðningsmenn hans um kosningasvik og krafist þess að kosið verði aftur. Kærur voru lagðar fyrir byltingaráðið og í gær var staðfest í írönskum miðlum að fleiri hefðu kosið á sumum kjörstöðum en voru á kjörskrá.

Ráðið svaraði því til að það skýrðist af því að margir Íranar kusu annars staðar en þeir voru skráðir, auk þess sem munurinn væri innan við þrjár milljónir atkvæða og því ekki til að breyta úrslitum þegar munurinn á Ahmadinejad og Mir Hussein Mousavi sem varð í öðru sæti hafi verið um ellefu milljónir atkvæða.

Í yfirlýsingu ráðsins í morgun er síðan tilkynnt að ekki verði kosið á ný þar sem engir alvarlegir annmarkar hafi verið á framkvæmd kosninganna. Engin alvarleg brot á reglum framin eða um svik að ræða.

Mótmæli hafa verið nokkur í Íran síðustu rúma vikuna vegna kosninganna og mótmælendur fallið í átökum við lögreglu, þar á meðal tíu á föstudaginn þegar Ali Khamenei æðstiklerkur bannaði útifundi. Um þúsund stjórnarandstæðingar mótmæltu í miðborg Teherans í gær, töluvert færri en dagana á undan. Táragasi var sprautað og kylfum beitt.

Forsetaframbjóðandinn Mehdi Karoubi hvetur til fjölmennra mótmæla á fimmtudaginn þar sem föllnum mótmælendum verði vottuð virðing.

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti í morgun til að hætt yrði að beita ofbeldi á götum Teherans. Hann hvetur írönsk stjórnvöld til að virða grundvallar mannréttindi, þar á meðal fundar- og tjáningarfrelsi. Hætta skuli ofbeldi og handtökum.


Tengdar fréttir

Bretar kalla fjölskyldur heim frá Íran

Breska utanríkisráðuneytið hefur kallað fjölskyldur starfsmanna sendiráðsins í Íran heim vegna óróleika í landinu í kjölfar forsetakosninganna. Starfsmenn sendiráðsins munu dvelja áfram í Íran og sinna störfum sínum.

Komu í veg fyrir hryðjuverkaárásir á kjördag

Írönsk yfirvöld segjast hafa komið í veg fyrir sprengjuárásir hryðjuverkamanna á kjördag í Íran fyrir tæpri viku. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneyti leyniþjónustumála tókst lögreglu og leyniþjónustustofnunum í Íran að koma í veg fyrir sprengjuárásir í moskum og á fjölförnum stöðum í höfuðborginni Teheran síðasta föstudag þegar forsetakosningar fóru fram í landinu.

Íranir endurskoða tengslin við Breta

Utanríkismálanefnd íranska þingsins, lagði í dag að utanríkisráðuneytinu, að endurskoða tengslin við Bretland vegna óviðurkvæmilegra afskipta af hinum umdeildu forsetakosningum.

Mestu mótmælaaðgerðir í Íran í 30 ár

Að minnsta kosti sjö hafa verið skotnir til bana á götum Teherans í Íran síðasta sólarhring, í stærstu mótmælaaðgerðum sem fram hafa farið í landinu í þrjátíu ár.

Mótmælendur deyja í Íran

Ríkissjónvarpsstöðin í Íran greindi frá því í gær að þrettán hefðu látist í átökum mótmælenda og óeirðalögreglu í gær í miðborg Teheran í Íran. Fréttastofur á borð við CNN segja þó að tala látinna sé mun hærri.

Hluti atkvæða endurtalinn í Íran

Byltingarráðið í Íran hefur ákveðið að endurtelja tíu prósent atkvæða í þeim tilgangi að róa mótmælendur sem halda því fram að niðurstöður kosninganna 12. júní síðastliðinn séu rangar. Tugir þúsunda mótmæltu í dag í miðborg Teheran í Íran.

Rólegra í Teheran

Ró færðist yfir götur Teheran í Íran í dag eftir að ríkissjónvarpsstöðin þar í landi greindi frá því að tíu til viðbótar hafi látist í átökum mótmælenda og óeirðalögreglu í gær. Sjónvarpsstöðin greindi líka frá því lögregla hafi handtekið dóttur og fjóra aðra ættinga fyrrverandi forseta landsins, Hashemi Rafsanjani, í gær. Rafsanjani er einn valdamesti maður landsins.

Hvetur Írani til að hætta mótmælum vegna kosninganna

Khamenei, æðstiklerkur í Íran, hvetur landa sína til að hætta mótmælum vegna forsetakosninganna í síðustu viku. Haldi mótmæli áfram verði blóðbað vegna þeirra á ábyrgð frambjóðenda sem játi sig enn ekki sigraða.

Atkvæði talin á ný í Íran

Klerkaráðið í Íran hefur kveðið upp þann úrskurð að telja skuli á ný atkvæði forsetakosninganna sem fram fóru þar í landi á föstudaginn.

Merkel gagnrýnir æðsta klerk Írans

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, gagnrýnir Ali Khamenei, æðsta klerk Írans, og segir ræðu sem hann flutti í morgun hafa verið mikil vonbrigði.

Mousavi hvetur mótmælendur í Íran

Mir Hossein Mousavi, forsetaframbjóðandi og leiðtogi írönsku stjórnarandstöðunnar, hvetur fylgismenn sína til að halda áfram mótmælum gegn endurkjöri Mahmoud Ahmadinejad forseta.

Mótmælt sjötta daginn í röð

Búist er við fjölmennum mótmælum í Íran sjötta daginn í röð vegna úrslita forsetakosninga þar í landi fyrir tæpri viku. Byltingarráðið í Íran hefur kallað frambjóðendurna þrjá sem biðu ósigur til að bera vitni fyrir helgina vegna rannsóknar á ásökunum um kosningasvik.

Ban Ki-moon krefst þess að Íranar láti af ofbeldi

Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, krefst þess að stjórnvöld í Íran láti þegar af handtökum og ofbeldi gegn mótmælendum sem undanfarna daga hafa haft uppi hávær mótmæli vegna úrslita forsetakosninganna þar í landi en grunur leikur á að endurkjör Mahmouds Ahmadinejad forseta hafi verið knúið fram með vafasömum hætti.

Háskólanum í Teheran rústað - myndir á Facebook

Myndir voru birtar á samskiptasíðunni Facebook í dag sem sagðar eru sýna eyðileggingu í Háskólanum í Teheran. Varalið hliðhollt Íransforseta er sagt hafa ráðist þar með ofbeldi gegn stjórnarandstæðingum. Úrslitum forsetakosninganna í síðustu viku var áfram mótmælt í írönsku höfuðborginni í dag.

Yfirvöld fá upplýsingar af Facebook og Twitter

Eftir að írönsk yfirvöld hófu að takmarka aðgang vestrænna fjölmiðla að mótmælunum í Íran hafa samskiptasíður á borð við Twitter og Facebook orðið ómetanlegar. Sérstaklega eru síðurnar mikilvægar fyrir Bandaríkjamenn sem eiga engin stjórnmálatengsl við Íran og eiga bágt með að fylgjast með ástandinu í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×