Íbúar trufla umferð á Kjalarnesi á morgun 11. júní 2009 23:14 Íbúar á Kjalarnesi heimta aðgerðir. Mynd/ Kjalarnes.is „
Það var bara frábær mæting og mikill hugur í fólki," segir Hólmar Þór Stefánsson, íbúi á Kjalarnesi og fulltrúi íbúasamtökum og hverfaráði Kjalarness. Í kvöld hittust íbúar Kjalarness til þess að ræða aðgerðaleysi stjórnvalda í málum hverfisins en börnum á svæðinu stafar mikil hætta af umferð um vesturlandsveg. Íbúar krefjast aðgerða. „Það fer fram truflun á umferð á Vesturlandsvegi á morgun milli fimm og átta," segir Hólmar en íbúar á Kjalarnesi ætla þá að mótmæla aðgerðaleysi stjórnvalda. Hann segir íbúa vera langþreytta. Hólmar segir að truflun umferðar á morgun fari þó friðsamlega fram. „Við ætlum ekkert að fara að stoppa umferðina eins og vörubílstjórarnir eða berja á potta og pönnu. Þetta verða róleg mótmæli en fólk verður vart við okkur," segir Hólmar. Ef aðgerðirnar á morgun skila ekki árangri bendir Hólmar á að tvær stórar ferðahelgar séu eftir í sumar og á þar við fyrstu helgi júlímánaðar og verslunarmannahelgina. „Við erum búin að mynda net af samskiptaleiðum. Þannig að við getum smalað saman fjölda fólks á stuttum tíma." Hólmar segir að aðgerðir þurfi strax. Fræsing í götuna þurfi til að mynda ekki að fara í umhverfismat en skili þó einhverjum árangri í því að hægja á umferð. Hann bendir einnig á að girðing milli hverfis og þjóðvegar þurfi ekki heldur að fara í umhverfismat en geri engu að síður gagn til bráðabirgða. Helst vilja íbúar þó fá undirgöng og segir Hólmar að teikning af þeim hafi verið til hjá Vegagerðinni í sautján ár. Að sögn Hólmars var hitinn í fólki mikill á fundinum. „Við þurftum að gefa okkur góðan tíma í að tala fólkið niður. Það vildi einfaldlega fara í róttækar aðgerðir," segir hann. Á morgun er boðaður fundur á vegum hverfaráðs Kjalarness og hefur samgönguráðherra, sem og borgarfulltrúum verið boðið að sitja þann fund. Kristján Möller mun þó ekki ætla að þekkjast boðið þar sem hann verður á Húsavík. „Mér skilst að hann ætli ekki einu sinni að senda fulltrúa," segir Hólmar og bætir við: „Við veltum því stundum fyrir okkur hvort að hann keyri austurleiðina þegar hann fer á Siglufjörð. Það er með ólíkindum að hann hafi ekki áttað sig á ástandinu hérna."
Tengdar fréttir Ólafur F. vill aðgerðir strax á Kjalarnesi Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra, segir að þörf sé á aðgerðum á Kjalarnesi strax og ekki eigi að „svæfa málið í nefnd“. 11. júní 2009 17:35 Taka undir með íbúum á Kjalarnesi Borgarráð tekur undir með íbúum á Kjalarnesi um að brýnt sé að fara í nauðsynlegar úrbætur á Vesturlandsvegi og mikilvægi þess að umferðaröryggismál verði betur tryggð fyrir akandi og gangandi vegfarendur við þessa fjölförnu umferðaræð. Þetta kemur fram í frétt á vef Reykjavíkurborgar. Vísir sagði frá áhyggjum íbúa á Kjalarnesi í morgun en litlu munaði að stórslys yrði á veginum þegar tveir ungr piltar urðu næstum undir flutningabíl þar í síðustu viku. 11. júní 2009 13:16 Krefjast úrbóta á Vesturlandsvegi Íbúasamtökin á Kjalarnesi ætla að grípa til aðgerða við Vesturlandsveg seinni partinn á morgun. Um táknræn mótmæli verður að ræða en íbúar eru orðnir langrþeyttir á aðgerðarleysi á Vesturlandsvegi. Tveir litlir drengir urðu næstum undir flutningabíl þar í síðustu viku og var það dropinn sem fyllti mælinn. Marta Guðjónsdóttir formaður hverfaráðs Kjalarness hefur boðað til íbúafundar annað kvöld og vill að samgöngunefnd Alþingis láti sjá sig. 11. júní 2009 12:06 Vinna við úrbætur á Vesturlandsvegi í fullum gangi Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að úrbætur á Vesturlandsvegi séu í fullum gangi hjá Vegagerðinni. Vísir sagði frá áhyggjum íbúa á Kjalarnesi yfir umferðaröryggi á svæðinu í morgun. Í síðustu viku munaði litlu að tveir ungir piltar yrðu undir flutningabíl. Kristján segist hafa farið á íbúafund á svæðinu þann 1.apríl og daginn eftir hafi hann gengið í málið með Vegamálastjóra. Stefnt er á að setja undirgöng undir veginn og Kristján hefur óskað eftir því að það verði gert sem allra fyrst. 11. júní 2009 15:12 Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta Sjá meira
Ólafur F. vill aðgerðir strax á Kjalarnesi Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra, segir að þörf sé á aðgerðum á Kjalarnesi strax og ekki eigi að „svæfa málið í nefnd“. 11. júní 2009 17:35
Taka undir með íbúum á Kjalarnesi Borgarráð tekur undir með íbúum á Kjalarnesi um að brýnt sé að fara í nauðsynlegar úrbætur á Vesturlandsvegi og mikilvægi þess að umferðaröryggismál verði betur tryggð fyrir akandi og gangandi vegfarendur við þessa fjölförnu umferðaræð. Þetta kemur fram í frétt á vef Reykjavíkurborgar. Vísir sagði frá áhyggjum íbúa á Kjalarnesi í morgun en litlu munaði að stórslys yrði á veginum þegar tveir ungr piltar urðu næstum undir flutningabíl þar í síðustu viku. 11. júní 2009 13:16
Krefjast úrbóta á Vesturlandsvegi Íbúasamtökin á Kjalarnesi ætla að grípa til aðgerða við Vesturlandsveg seinni partinn á morgun. Um táknræn mótmæli verður að ræða en íbúar eru orðnir langrþeyttir á aðgerðarleysi á Vesturlandsvegi. Tveir litlir drengir urðu næstum undir flutningabíl þar í síðustu viku og var það dropinn sem fyllti mælinn. Marta Guðjónsdóttir formaður hverfaráðs Kjalarness hefur boðað til íbúafundar annað kvöld og vill að samgöngunefnd Alþingis láti sjá sig. 11. júní 2009 12:06
Vinna við úrbætur á Vesturlandsvegi í fullum gangi Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að úrbætur á Vesturlandsvegi séu í fullum gangi hjá Vegagerðinni. Vísir sagði frá áhyggjum íbúa á Kjalarnesi yfir umferðaröryggi á svæðinu í morgun. Í síðustu viku munaði litlu að tveir ungir piltar yrðu undir flutningabíl. Kristján segist hafa farið á íbúafund á svæðinu þann 1.apríl og daginn eftir hafi hann gengið í málið með Vegamálastjóra. Stefnt er á að setja undirgöng undir veginn og Kristján hefur óskað eftir því að það verði gert sem allra fyrst. 11. júní 2009 15:12