Erlent

Andstaða við hugsanlegan utanríkisráðherra

Avigdor Lieberman.
Avigdor Lieberman.

Ráðamenn í Washington og víða í Evrópu eru andsnúnir því að Avigdor Lieberman, leiðtogi ísrelska öfgahægriflokksins Yisrael Beitein, verði utanríkisráðherra í ríkisstjórn Benjamin Netanyahu, leiðtoga Likudbandalagins. Liberman hefur meðal annars verið líkt við Mahmoud Ahmadinejad forseta Írans.

Flokkur Liebermans jók fylgi sitt í kosningunum í Ísrael um miðjan seinasta mánuð og nú stefnir allt í að Netanyahu takist að mynda nýja ríkisstjórn.

Hillary Clinton, utanríkisráðherra, hefur sagt að ríkisstjórn Baracks Obama muni vinna með hvaða ríkisstjórn sem er.

Þó er ljóst að hugsnlega seta í Libermans í stjórninni veldur ákveðnum áhyggjum vestanhafs og í Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×