Erlent

Mun ekki skila Gólanhæðum

Benjamin Netanyahu.
Benjamin Netanyahu.

Benjamin Netanyahu, leiðtogi Likudflokksins sem flest bendir til að vinni þingkosningarnar sem fram fara í Ísrael í vikunni, lýsti því yfir í gær að ríkisstjórn undir sinni forystu myndi ekki taka í mál að skila Sýrlandi Gólanhæðum til að liðka fyrir friðarsamningum. Ísraelar hafa haldið hæðunum hernumdum síðan í stríðinu 1967.

Kosningabaráttan hefur verið tíðindalítil allt frá því kosningarnar voru boðaðar í nóvember, þar til nú að Netanyahu grípur til þessa ráðs til að freista þess að halda í hægrijaðarfylgi sem nýr harðlínuflokkur höfðar til. - aa




Fleiri fréttir

Sjá meira


×