Erlent

Harma tískumyndir á minnisvarða vegna helfararinnar

Minnisvarðinn.
Minnisvarðinn.

Forsvarsmenn Easyjet hafa beðist innilegrar afsökunar á tískumyndaþætti sem birtist í tímariti flugfélagsins og var dreift í flugvélum fyrirtækisins. Í ljós kom að myndirnar voru teknar á minnisvarða vegna helfararinnar

Enginn áttaði sig á mistökunum fyrr en tímaritið New Statement benti flugfélaginu á það.

Það var fyrirtækið INK sem tók myndirnar og framleiddi tímaritið en flugfélagið skoðar nú samstarf sitt við það vegna myndanna.

Í ljós hefur komið að ekki var leitast eftir samþykki forsvarsmanna minnisvarðans en málið þykir afar viðkvæmt. Hafa forsvarmenn Easyjet verið sakaðir um gróft smekkleysi vegna myndanna.

Tímaritið hefur verið fjarlægt úr öllum flugvélum félagsins að sögn talsmanns Easyjet.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×