Erlent

Nýja stjórnin gagnrýnd

Guido Westerwelle og Angela Merkel í þinghúsinu í gær. Mynd/AP
Guido Westerwelle og Angela Merkel í þinghúsinu í gær. Mynd/AP
Verkalýðshreyfingin og stjórnarandstaðan í Þýskalandi gagnrýna nýja ríkisstjórn Angelu Merkel kanslara og segja stjórnina ekki bjóða upp á neinar nýjar lausnir. Ný ríkisstjórn tók formlega við í Þýskalandi í gær. Kristilegir demókratar, flokkur Merkel, og Frjálsir demókratar mynda hina nýju stjórn en áður sátu kristilegir demókratar í stjórn með sósíaldemókrötum.

Í kringum stjórnarmyndunarviðræðunum var fullyrt í þýskum fjölmiðlum að Merkel hefði ekki stýrt viðræðunum heldur einfaldlega látið Guido Westerwelle, leiðtogi Frjálsra demókrata, ráða ferðinni og er hann sagður hafa lagt fram skýrar hægriáherslur.

Merkel hefur sagt að nýja stjórnin þurfi að takast á við aukinn vöxt efnahagskerfisins eftir djúpa kreppu. Með því að fá Frjálsa demókrata til liðs við sig stefnir Merkel á að lækka skatta og loka öllum kjarnorkuverum í Þýskalandi fyrir árið 2021.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×