Erlent

Aðgerðahópur lögreglu vegna Austur-Evrópubúa

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Vasaþjófnaður, innbrot í bíla og alls kyns svik og prettir af hálfu skipulagðra þjófagengja frá Austur-Evrópu er meðal þess sem lögreglan í Danmörku er að fá sig fullsadda af.

Á Jótlandi er ætlunin að setja á laggirnar sérstakan aðgerðahóp lögreglu sem ætlað er að einbeita sér að óboðnum, og oft ólöglegum, innflytjendum frá Póllandi, Litháen og Rúmeníu. Lögreglan segir afbrot fólks frá þessum löndum orðin alvarlegt vandamál sem Danir geti ekki búið við lengur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×