Erlent

Ákærður fyrir að myrða fimm konur - höfuðkúpa þeirra sjöttu geymd í fötu

Anthony Sowell
Anthony Sowell

Nauðgarinn Anthony Sowell hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt fimm manneskjur en líkamar þeirra fundust á heimili hans í Ohio í Bandaríkjunum í vikunni. Hinn fimmtugi Anthony hefur einnig verið ákærður fyrir nauðgun og mannrán.

Líkin fundust fyrir tilviljun á heimili Sowell í vikunni en hann hefur áður afplánað fimmtán ára dóm fyrir nauðgun.

Húsið hans virðist vera sannkallað hryllingshús því fleiri vísbendingar finnast þar á hverjum degi.

Meðal annars fannst lík grafið í bakgarðinum en höfuðkúpan fannst í fötu í kjallara hússins. Alls hafa sex lík fundist. Allt konur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×