Erlent

Handtekinn eftir fjórtán ár á flotta

Salvatore Russo
Salvatore Russo MYND/AFP

Salvatore Russo leiðtogi Camorra mafíunnar á Ítalíu var handtekinn eftir fjórtán ár á flótta í dag. Salvatore er talinn vera einn af 30 eftirlýstustu og hættulegustu mafíósum veraldar. Hann var handtekinn í leynibyrgi á kjúklingabúi og hefur handtakan vakið mikla athygli.

Hinn 51 árs gamli Russo hlaut lífstíðardóm fyrir morð og aðra glæpi tengda mafíunni, en hann hefur veirð á flótta síðan árið 1995. Lögreglan á Ítalíu er mjög uppi með sér eftir handtökuna.

„Við erum að loka hringnum hjá Camorra mafíunni með því að hafa uppi á þeim sem hafa verið á flótta," lét yfirmaður í lögreglunni hafa eftir sér.

Þegar Russo var leiddur út í járnum reyndi hann meðal annars að sparka í ljósmyndara. Myndband af því er hægt að sjá hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×