Skuldastaða heimilanna er ógnvænleg Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 6. júlí 2009 12:25
Skuldastaða heimilanna er ógnvænleg og fer versnandi, segja Hagsmunasamtök heimilanna og krefjast þess að ríkisstjórnin láti útbúa hagspá heimilanna sem nái yfir sama tímabil og endurreisn ríkissjóðs. Hagsmunasamtök heimilanna hafa sent frá sér ályktun þar sem lýst er eftir hagspá heimilanna til 2013. Þau lýsa yfir miklum áhyggjum af sífellt versnandi stöðu íslenskra heimila og segja tölur Seðlabankans sýna að greiðslubyrði 18% heimila sé þung og mjög þung hjá 36 prósentum heimila. Sú sé staðan þrátt fyrir að stór hluti heimila hafi nýtt sér ýmis úrræði hjá lánastofnunum. Þá er í ályktuninni vísað í útreikninga sem gerðir voru fyrir fréttastofu Stöðvar 2 sem sýna að skattbyrði fjögurra manna fjölskyldu muni þegar skattahækkanir hafa komið að fullu til framkvæmda eftir þrjú ár aukast um 90 þúsund krónur á mánuði - að jafnaði - frá því sem nú er. Hvernig heimilin eigi að standa undir slíkum álögum ofan á allt er samtökunum hulin ráðgáta. Eins er í ályktuninni vísað til útreikninga stjórnarmanns í Hagsmunasamtökunum sem sýni að vísitölufjölskyldan sé nú þegar rekin með tveggja milljóna króna rekstrarhalla á ársgrundvelli, augljóst sé að meiri álögur stefni enn fleirum í vanda. Könnun meðal félagsmanna í samtökunum sýni að afgerandi meirihluti þeirra, eða 61%, nái ekki endum saman með tekjum sínum, sé annað hvort gjaldþrota eða á leið þangað eða að safna skuldum eða ganga á sparifé. Tæpur helmingur, eða 44%, félagsmanna telja frekar eða mjög litlar líkur á því að þeir geti staðið við skuldbindingar sínar næstu sex mánuði. Í ljósi þessa krefjast Hagsmunasamtökin þess að ríkisstjórnin láti útbúa hagspá heimilanna sem nái yfir sama tímabil og endurreisn ríkissjóðs. Slík hagspá sé nauðsynleg til að sjá hver fjárhagsstaða heimilanna er. Til lítils sé að rétta við fjárhag ríkissjóðs og fjármálafyrirtækja sé það á kostnað heimila, atvinnulífs og sveitarfélaga. Endurreisn allra þessara grunnstoða þurfi að haldast í hendur segir að lokum í ályktun stjórnar Hagsmunasamtaka heimilanna.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira