Erlent

Ný stjórn tekin við í Þýskalandi

Guido Westerwelle og Angela Merkel í þýska þinginu í dag. Mynd/AP
Guido Westerwelle og Angela Merkel í þýska þinginu í dag. Mynd/AP

Ný ríkisstjórn tók formlega við í Þýskalandi í dag. Kristilegir demókratar, flokkur Merkel, og Frjálsir demókratar mynda hina nýju stjórn en áður sátu kristilegir demókratar í stjórn með sósíaldemókrötum. Angela Merkel, leiðtogi kristilegra, verður áfram kanslari, Guido Westerwelle, leiðtogi Frjálsra demókrata, verður utanríkisráðherra.

Merkel hefur talað fyrir því öflug meirihlutastjórn þurfi til að takast á við aukinn vöxt efnahagsins eftir djúpa kreppu. Með því að fá Frjálsa demókrata til liðs við sig vonast hún til að lækka skatta og loka öllum kjarnorkuverum landsins fyrir árið 2021.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×