Brown víkur dómsmálaráðherranum vegna uppljóstrana um misferli 15. maí 2009 12:24 Shahid Malik. Mynd/AP
Shahid Malik hefur verið vikið úr embætti dómsmálaráðherra í Bretlandi vegna uppljóstrana bresks blaðs um að hann hafi gengið lengra í að fá ýmiss konar kostnað greiddan úr ríkissjóði en margir aðrir þingmenn. Lundúnablaðið Telegraph greindi frá því í morgun að Malik hefði þegið jafnvirði 13 milljóna króna fyrir að halda úti dvalarstað í Lundúnum þar sem hann situr á þingi en það leyfist þingmönnum sem líkt og Malik eru með lögheimili í kjördæmi sínu fjarri höfuðborginni. Malik mun hafa fengið mun meira endurgreitt en aðrir þingmenn í sömu stöðu. Í Telegraph er Malik einnig gagnrýndur fyrir að hafa leigt hús í kjördæmi sínu langt undir markaðsverði af umdeildum leigusala með dóma á bakinu fyrir svik. Athygli vekur einnig að Malik fékk endurgreiddan kostnað upp á jafnvirði hálfrar milljónar króna fyrir uppsetningu á veglegu heimabíókerfi. Daily Telegraph hefur síðustu daga fjallað ítarlega um endurgreiðslur af opinberu fé til breskra þingmanna vegna útgjalda þeirra. Hefur komið í ljós að þeir hafa teygt gildandi reglur til hins ítrasta og hafa tveir aðrir þingmenn verið reknir úr Verkamannaflokknum og Íhaldsflokknum vegna þessa. Malik þykir hafa teygt sig lengra en margir þeirra sem upplýst hefur verið um síðustu daga. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hefur falið óháðum fulltrúa að rannsaka mál Maliks og á meðan sitji hann ekki í ríkisstjórn.
Tengdar fréttir Dómsmálaráðherrann grófastur í kostnaðinum Enginn breskur þingmaður hefur gengið lengra í að fá ýmiss konar kostnað greiddan úr ríkissjóði en dómsmálaráðherrann Shahid Malik. 15. maí 2009 07:33 Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira
Dómsmálaráðherrann grófastur í kostnaðinum Enginn breskur þingmaður hefur gengið lengra í að fá ýmiss konar kostnað greiddan úr ríkissjóði en dómsmálaráðherrann Shahid Malik. 15. maí 2009 07:33