Erlent

Brown víkur dómsmálaráðherranum vegna uppljóstrana um misferli

Shahid Malik.
Shahid Malik. Mynd/AP
Shahid Malik hefur verið vikið úr embætti dómsmálaráðherra í Bretlandi vegna uppljóstrana bresks blaðs um að hann hafi gengið lengra í að fá ýmiss konar kostnað greiddan úr ríkissjóði en margir aðrir þingmenn.

Lundúnablaðið Telegraph greindi frá því í morgun að Malik hefði þegið jafnvirði 13 milljóna króna fyrir að halda úti dvalarstað í Lundúnum þar sem hann situr á þingi en það leyfist þingmönnum sem líkt og Malik eru með lögheimili í kjördæmi sínu fjarri höfuðborginni. Malik mun hafa fengið mun meira endurgreitt en aðrir þingmenn í sömu stöðu.

Í Telegraph er Malik einnig gagnrýndur fyrir að hafa leigt hús í kjördæmi sínu langt undir markaðsverði af umdeildum leigusala með dóma á bakinu fyrir svik.

Athygli vekur einnig að Malik fékk endurgreiddan kostnað upp á jafnvirði hálfrar milljónar króna fyrir uppsetningu á veglegu heimabíókerfi.

Daily Telegraph hefur síðustu daga fjallað ítarlega um endurgreiðslur af opinberu fé til breskra þingmanna vegna útgjalda þeirra. Hefur komið í ljós að þeir hafa teygt gildandi reglur til hins ítrasta og hafa tveir aðrir þingmenn verið reknir úr Verkamannaflokknum og Íhaldsflokknum vegna þessa.

Malik þykir hafa teygt sig lengra en margir þeirra sem upplýst hefur verið um síðustu daga.

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hefur falið óháðum fulltrúa að rannsaka mál Maliks og á meðan sitji hann ekki í ríkisstjórn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×