Erlent

Dómsmálaráðherrann grófastur í kostnaðinum

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Forsíða Telegraph sem fjallar um málið. Hægra megin er leigusalinn sem Malik leigði hús af langt undir kostnaðarverði.
Forsíða Telegraph sem fjallar um málið. Hægra megin er leigusalinn sem Malik leigði hús af langt undir kostnaðarverði.

Enginn breskur þingmaður hefur gengið lengra í að fá ýmiss konar kostnað greiddan úr ríkissjóði en dómsmálaráðherrann Shahid Malik. Að sögn Telegraph þáði Malik tæplega 70 þúsund pund, jafnvirði um 13 milljóna króna, fyrir að halda úti dvalarstað í London, þar sem hann situr á þingi, en leigði á sama tíma hús í Dewsbury langt undir markaðsverði og greiddi leiguna úr eigin vasa, en þar hefur Malik lögheimili. Þar kom hann sér hins vegar upp veglegu heimabíókerfi og lét skattgreiðendur borga brúsann, tæpa hálfa milljón króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×