Erlent

92 látnir eftir mikil flóð í El Salvador

Flóðin í El Salvador hafa kostað að minnsta kosti 92 lífið. Mynd/AP
Flóðin í El Salvador hafa kostað að minnsta kosti 92 lífið. Mynd/AP
Yfirvöld í El Salvador segja að 92 hið minnsta hafi týnd lífi í flóðum í kjölfar mikillar rigningar í landinu undanfarna daga. Að minnsta kosti 60 er saknað og þá hafa rúmlega 7000 íbúar þurft að leita skjóls í neyðarskýlum.

Humberto Centeno, innanríkisráðherra El Salvador, lýsti í dag yfir neyðarástandi í fimm umdæmum. San Vicente og höfuðborgin San Salvador eru þau svæði sem eru hvað verst leikin eftir flóðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×