Tsvangirai forsætisráðherra 13. febrúar 2009 04:30 Sögulegar sættir. Morgan Tsvangirai, t.v., sver embættiseiðinn fyrir framan Robert Mugabe, forseta Simbabve, í Harare. fréttablaðið/ap
Robert Mugabe Simbabveforseti skipaði á miðvikudag erkikeppinaut sinn, Morgan Tsvangirai, forsætisráðherra nýrrar þjóðstjórnar. Þykja þetta mikil tímamót eftir nær þrjátíu ára óslitna valdatíð Mugabe, sem einkum og sér í lagi hin síðari ár hefur einkennst af algeru geðþótta-einræði með tilheyrandi kúgun og misbeitingu valds. Þrýst hefur verið á Mugabe að víkja alveg frá völdum, en hann hefur ekki gefið neitt annað til kynna en að hann hyggist sitja sem fastast enn um sinn. Mugabe, sem nýlega lýsti því yfir að hann „ætti“ Simbabve, gekk lengra í að koma til móts við kröfur stjórnarandstöðunnar en flestir höfðu búist við. Eftir stutta embættistökuathöfn í garði forsetabústaðarins í Harare tjáði Tsvangirai fjölmiðlum, að hann vissi að margir væru „tortryggnir út í þetta fyrirkomulag. En þetta er eina færa leiðin. Ég skora á landsmenn að sýna þolinmæði og gefa okkur tíma.“ Efnahagur Simbabve, sem á árum áður státaði af einum bestu lífskjörum Afríku, er ein rjúkandi rúst. Stór hluti íbúanna er algerlega háður matargjöfum alþjóðlegra hjálparstofnana og kóleru-faraldur hefur orðið minnst 3.400 manns að aldurtila síðan í ágúst. - aa
Mest lesið „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Fleiri fréttir Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Sjá meira