Erlent

Óður hundur drap 70 hænsn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Aðstæður líktust helst sláturhúsi á bæ einum í Ørslev á Sjálandi í gær þegar stór hundur beit 70 hænsn og tvo ketti til ólífis. Æðið sem rann á hundinn mun verða eigandanum dýrkeypt því að hann hefur verið kærður fyrir að brjóta reglur um hundahald. Hann mun jafnframt þurfa að greiða bætur vegna dýranna sem drápust.

„Við ætlum ekki að krefjast þess að hundurinn verði aflífaður vegna þess að hundurinn virðist ekki hafa gerst sekur um neitt þessu líkt áður. En það getur samt verið að hundaeigandinn taki þá ákvörðun sjálfur að láta aflífa hundinn, er haft eftir Jan Lauritzen varðstjóra hjá lögreglunni á Sjálandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×