Adebayor reis upp á sjöunda degi 3. febrúar 2009 14:52 Kraftaverkamaðurinn Adebayor NordicPhotos/GettyImages
Framherjinn Emmanuel Adebayor hjá Arsenal upplifði kraftaverk þegar hann var barn. Adebayor er fæddur í Tógó í Afríku en á líka ættir að rekja til Nígeríu. Hann var ekki enn farinn að ganga þegar hann var fjögurra ára gamall. Móðir hans leitaði svara við þessu undarlega vandamáli víða, en var að lokum sagt að fara með drenginn í kirkju og biðja fyrir honum í eina viku. Ef hann gæti ekki gengið eftir það - myndi hann aldrei gera það. Móðir hans lagðist á bæn á miðnætti á sunnudegi en ekkert gerðist fyrr en á sunnudagsmorgni viku síðar. Þá var konan að verða búin að gefa upp alla von þegar fótbolti sem börn höfðu verið að leika sér með fyrir utan kirkjuna rúllaði inn á kirkjugólfið og í átt til Adebayor litla. Drengurinn stóð þá upp og hljóp í átt að boltanum og þar með var kraftaverkið fullkomnað. "Þeir sögðu mömmu að ég hlyti að vera með fótbolta í blóðinu," sagði Adebayor sjálfur. "Þetta er ótrúleg saga - en hún er sönn. Mamma hefur sagt mér hana aftur og aftur frá því ég var barn," sagði framherjinn í samtali við Daily Telegraph. Hann segist vera mjög trúaður maður. "Ég legg allt í hendurnar á Guði. Ég bið til hans þegar ég vakna og áður en ég fer að sofa. Það er ekkert mikilvægara í lífinu en Guð," sagði Tógómaðurinn. "Fyrir átta árum var ég með smáaura í laun. Ég veit hvernig það er að hafa ekkert. Ég veit hvaðan ég er að koma og mun aldrei gleyma því," sagði Adebayor.
Enski boltinn Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Fótbolti Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Sjá meira