Erlent

Sérsveitarmenn ákærðir fyrir að slá hryðjuverkamann

Fallujah.
Fallujah.

Þrír þrautþjálfaðir sérsveitarmenn hjá Bandaríkjaher hafa verið ákærðir fyrir að slá meintan hryðjuverkamann sem þeir handsömuðu á dögunum í leynilegri aðgerð.

Maðurinn er grunaður um að hafa skipulagt fyrirsát í Fallujah árið 2004 sem varð fjórum Blackwater öryggisvörðum að bana. Hann er að auki eftirlýstasti hryðjuverkamaðurinn í Írak en hann heitir Ahmed Hashim Abed.

Í ljós kom að meinti hryðjuverkamaðurinn hafði verið sleginn í framan og gat sýnt fram á það með bólginni vör samkvæmt Fox News.

Hermennirnir neita allir sök en þeir eru þrautþjálfaðir og hluti af svokölluðum, „Navy Seals". Það er hópur framúrskarandi hermanna í bandaríska hernum.

Mennirnir verða færðir fyrir dómara í byrjun desember en búist er við að aðalmeðferð málsins verði í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×