Erlent

Blóðrauðir gosbrunnar í Napólí

Sex gosbrunnar í ítölsku borginni Napólí urðu blóðrauðir á lit í dag. Að sögn lögreglu er talið að hægri-öfgamenn hafi hellt matarlit í brunnana til þess að vekja athygli á framferði Ísraelsmanna á Gaza ströndinni undanfarið.

Dreifimiðar fundust við gosbrunnana sem á var letruð dagsetning hernaðaraðgerðanna á Gaza og fjöldi særðra og látinna.

„Heimurinn stóð og fylgdist með af barmi hengiflugsins," sagði einnig. Lögregla rannsakar atvikin, að sögn Reuters.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×