Nældu sér í saur á náttúrugripasafninu í London Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. febrúar 2009 08:07 Á safninu. MYND/Telegraph
Steingerður risaeðlusaur var það eina sem nokkrir þjófar höfðu upp úr krafsinu þegar þeir létu greipar sópa á náttúrugripasafninu í London. Þeir hafa án efa orðið vonsviknir, sem þarna voru á ferð, þegar þeir áttuðu sig á því hver fengur þeirra var en talið er líklegt að raunverulegt ætlunarverk þeirra hafi verið að næla sér í hluta af beinagrind títanseðlu sem safnið hefur til sýnis, steingerðri og vitaskuld ævafornri. Lögreglu var tilkynnt um saurhvarfið en aðhafðist ekki frekar í málinu enda alls óvíst um verðgildi afurðarinnar. Sérfræðingar segja þó að sé saurinn ósvikinn megi gera því skóna að hann hafi nokkurt verðgildi. Um náttúrugripasafnið í London fara 3,8 milljónir gesta ár hvert og hafa átta safngripir horfið síðustu sex árin. Til dæmis hvarf heilmikið safn fiðrilda meðan á flutningi þess frá skordýradeild safnsins stóð fyrir nokkrum árum og uppstoppaður íkorni virðist einnig hafa freistað fingralangra því hann hvarf árið 2006. Risaeðlusaurinn er þó það frumlegasta sem nokkrum manni hefur tekist að stela úr safninu en þar sem verðmæti hans er að líkindum takmarkað er safnstjórninni nánast sama um hvarfið, skítsama.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira