Erlent

Obama hugnast framkvæmdir Ísraela illa

Mynd/AP
Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, hugnast illa fyrirætlanir Ísraela um landtökubyggðir í austurhluta Jerúsalem þar sem þeir hafa hug á að reisa tæplega 900 íbúðir. Forsetinn segir þær hvorki auka öryggi Ísraels né auðvelda friðarviðræður á svæðinu.

Fyrr í dag fordæmdi Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, framkvæmdirnar og sagði þær ólöglegar.

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur ítrekað hundsað beiðni Obama og Sameinuðu þjóðanna um að stöðva framkvæmdirnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×