Starfsfólk í Japan sent heim að eignast börn Atli Steinn Guðmundsson skrifar 27. janúar 2009 08:11 Frá Tókýó.
Japönsk stórfyrirtæki hafa nú tekið upp á því að hleypa starfsmönnum sínum fyrr heim tvisvar í viku, í þeirri von að barneignir glæðist. Vinnusemi er Japönum í blóð borin og 12 klukkustunda vinnudagur þykir ekkert tiltökumál þar í landi. Japanar fljóta þó sofandi að feigðarósi með fæðingartíðnina 1,34 sem er með því lægsta í heiminum, sem sagt 1,34 fæðingar árlega á hverja þúsund íbúa. Þessi tala táknar einfaldlega að getnaður Japana er í bullandi mínus og þjóðin nær ekki að viðhalda sjálfri sér. Hvergi eru eldri borgarar fjölmennari en í Japan, 21 prósent þjóðarinnar er eldri en 65 ára og fari sem horfir verður sá hópur kominn í 40 prósent árið 2055. Til að bregðast við þessu hefur myndavélaframleiðandinn Canon ásamt fleiri stórfyrirtækjum riðið á vaðið og leyft starfsmönnum að fækka vinnustundunum í því augnamiði að fjölga sjálfum sér. Þessum styttri dögum lýkur þá klukkan 17:30 sem margar þjóðir myndu telja í síðbúnari kantinum en Japanar, sem gjarnan vinna langt fram á kvöld, líta á sem gríðarmikla ívilnun - og skref í átt að hærri fæðingartíðni.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira