Erlent

Barnavernd í Bretlandi: Vistuðu barn hjá blindri konu á níræðisaldri

Baby P. Sama barnavernd og var ábyrg fyrir Baby P., vistaði tveggja ára dreng hjá blindri konu á níræðisaldri.
Baby P. Sama barnavernd og var ábyrg fyrir Baby P., vistaði tveggja ára dreng hjá blindri konu á níræðisaldri.

Sama barnaverndarnefnd og sá um umdeilt mál Baby P., fóstraði tveggja ára gamalt barn hjá blindri konu á níræðisaldri samkvæmt The Daily Mail. Þar segir að nefndin sé sökuð um alvarlega vanrækslu eftir að þau skildu barnið eftir í umsjón konunnar sem var 82 ára gömul. Á meðan hún fóstraði tveggja ára gamlan dreng féll hún niður stiga. Nokkru síðar lést hún á spítala.

Konan lá meðvitundarlaus í sex tíma samkvæmt læknum og á meðan var drengurinn hjá henni. Það var ekki fyrr en vinur konunnar hringdi og drengurinn svaraði sem í ljós kom að ekki var allt með felldu.

Ættmenni konunnar eru æfir út í barnaverndarnefndina en nefndarmenn segjast hinsvegar hafa viljað taka barnið úr umsjá konunna. Sonur konunar segir hinsvegar að barnið hafi verið í umsjá nefndarinnar í átján mánuði áður en þeir fóru fyrir dómstóla og reyndu að koma barninu í annað fóstur.

Hann bendir einnig á að nefndarmennirnir hafi hitt konuna og séð hversu gömul hún væri. Hún hefði á engan hátt getað séð um tveggja ára gamalt barn. Eina ástæðan fyrir því að hún féllst á að skjóta skjólhúsi yfir barnið var sú að hún var of stolt til þess að viðurkenna að hún gæti það ekki að sögn sonarins.

Barnaverndarnefndin er afar umdeild eftir að hún sá um mál Baby P., sem varð landsfrægt vegna ólýsanlegrar grimmdar sem móðir hans og fósturfaðir beittu hann. Barnið lést vegna ítrekaðs ofbeldis. Móðirin og fósturfaðirinn sitja nú í fangelsi fyrir meðferðina á barninu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×